Keyptum okkur hús í Roswell og erum búin að vera á öðrum endanum að koma okkur fyrir. Vinnir okkar hér í Roswell hjálpuðu okkur að þrífa Highlands Loop og flitja allt dótið yfir í bílskúrinn okkar hér í Hamilton Park dr sem var alveg ómetanleg aðstöð.. Gistum hjá Heiðu og Sigurjóni í þrjár nætur á meðan parket var púsað upp og lakað og herbergi máluð. Takk fyrir okkur elskurnar.
Höddi og Soffia komu sama dag og við flutum inn líkt og fyrir tveimur árum. Aumingja þau...ehe Þau hjálpuðu okkur hræðilega mikið og voru á fullu með okkur fyrstu dagana að þrífa og koma okkur fyrir.
Vorum soldið komin með nóg af aðgerðum í lok síðustu viku og erum í pássu þessa dagana og erum meira að njóta húsins okkar núna. Þetta allt er algert æði. Er hreinlega með vilta nátturu bak við hús, lækur með smá foss og lækjarnið, sem er ekkert smá kóssý á morgnana ásamt fuglasöngnum, íkornum og einstakri kanninu skopandi um. Bara lukkulega með þetta allt..
Nú er bara að kíkja á myndir af aðgerðum og svo bara bóka miða. Nú er mar í svo hræðilega stóru húsi að nú er sko pláss...ehe
http://picasaweb.google.com/Kolla.HildurReyni að láta ekki líða svona langt á milli blogga en bissi bissi bissi...
Kvitt væri yndislegt...!!!!
Love
Kolla