Kolbrun Hildur
19.03.2009 12:47:12 / kolla-atlanta

Vorið og nýtt hús...

Keyptum okkur hús í Roswell og erum búin að vera á öðrum endanum að koma okkur fyrir. Vinnir okkar hér í Roswell hjálpuðu okkur að þrífa Highlands Loop og flitja allt dótið yfir í bílskúrinn okkar hér í Hamilton Park dr sem var alveg ómetanleg aðstöð.. Gistum hjá Heiðu og Sigurjóni í þrjár nætur á meðan parket var púsað upp og lakað og herbergi máluð. Takk fyrir okkur elskurnar.
Höddi og Soffia komu sama dag og við flutum inn líkt og fyrir tveimur árum. Aumingja þau...ehe  Þau hjálpuðu okkur hræðilega mikið og voru á fullu með okkur fyrstu dagana að þrífa og koma okkur fyrir.
Vorum soldið komin með nóg af aðgerðum í lok síðustu viku og erum í pássu þessa dagana og erum meira að njóta húsins okkar núna. Þetta allt er algert æði. Er hreinlega með vilta nátturu bak við hús, lækur með smá foss og lækjarnið, sem er ekkert smá kóssý á morgnana ásamt fuglasöngnum, íkornum og einstakri kanninu skopandi um. Bara lukkulega með þetta allt..

Nú er bara að kíkja á myndir af aðgerðum og svo bara bóka miða. Nú er mar í svo hræðilega stóru húsi að nú er sko pláss...ehe

http://picasaweb.google.com/Kolla.Hildur

Reyni að láta ekki líða svona langt á milli blogga en bissi bissi bissi...
Kvitt væri yndislegt...!!!!
Love
Kolla

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.02.2009 14:02:02 / kolla-atlanta

Vetur að breytast í haust og við stelpurnar orðnar ömmur!!!

Ég veit það ekki. Á að fara upp í 18 til 20 gráður um helgina. Hvað er það að seigja mér? Mikið búið að tuða í mér að ég sé léleg í bloginu, sem ég skil. Svo hér með bæti ég úr því.  Húsakaup ofarlega á list. Og ef allt gengur upp þá verðum við húsaeigendur í Roswell um miðjan mán. Mikið að gera hjá Rúnari eins og vanalega, ég að læra á photoshop og gengur ágjætlega. Helv. maginn búin að vera að angra mig í soldin tíma en fæ vonandi lausn á því á morgun. Er að fara til Dr. Morton í fyrramálið í létta svæfingu og ætlar hann að kíkja ofan í mig og ath með þetta og vonandi leysir hann málið fyrir mig. Orðin smá þreitt á þessu. 8| 

Hvernig líður ykkur með gang mála á Íslandi? Er þetta gott eða vont? Ætlar Davið ekkert að láta sér segjast? Ég ég er að sjálfsögðu að horfa á þetta yfir hafið. Hef stekar skoðanir á þessu öllu en spurning um hvað mar á að vera að æsa sig. Ekki eins og að ég breyti einhverju með smá tuði, eða hvað?. Það er smá kreppa hér í USA og atvinuleysið að aukast. Ekki að haft áhrif á okkur Íslensku mafíuna. Svo við all sæl hér á bleiku skíi...
 
Hræðilega var erfit þegar Magnea og fjölsk. fóru. Sakna þeirra alveg svakalega. Web-cam kemur sterk inn en samt ekki eins. Betra en ekkert!!  Konni að undir búa sig fyrir tofu testið og byrjar í sumarskóla í mars. Skildi hann fara að vita hvað hann vilji verða þegar hann verður stór????

Helena mín orðin Amma og að sjálfsögðu Ingólfur Afi. Þau allsæl og seigir stelpan að tilfiningin sé einstök. Kjöftuðum í gærkveldi um barnakerrur og bleyjur. ehe Litli maðurinn var skírður Bjarki Már. 
Til hamingju með litla prinsinn elsku Pétur Karl og Alda.

Ætla að kveðja að sini og vona svo heitt og innilega að þið kvittið fyrir ykkur elskurnar.

Love
Kolla bolla

» 11 hafa sagt sína skoðun

22.01.2009 05:38:23 / kolla-atlanta

Stelpan að fara :(

Já Magnea, Kristþór og Guðni búin að vera hjá okkur í rúmar tvær vikur og tímin gjörsamlega flogið frá okkur. Og ég með hnút í maganum yfir að þau séu að fara a morgun. snökt snökt.....
Búið að vera hræðilega gaman, yndislegt að hafa litla manninn hjá mér og að sjálfsögðu foreldrana líka..ehe Við búin að gera helling, Sædýrasafnið, Helen, Sirkus o.s.f.v. en samt ekki náð að gera allt sem við kannski ætluðum, en það verður gert næst þegar þau koma. Vorum með alla Íslensku mafíuna í SS-pylsupartíy í gærkveldi og var hræðilega gaman og kjaftað fram fram undir morgun. Hellingur af myndum komnar inn á Picasa. En myndir frá því í gær koma á morgun. Ætla að hætta núna og aðstoða stelpuna við að paka, eða kannski bara að sitja hérna í sofanum og kjafta við hana á meðan hún pakar,,,ehe
Takk fyrir kvittið þið sem það gerðu. Verð alltaf svo glöð að heyra frá ykkur sem kíkið á síðuna mína. Takk takk

Miss you all
Kolla

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.01.2009 14:27:54 / kolla-atlanta

Gleðilegt árið og takk fyrir okkur!!!!

Hrikalega langt síðan ég kom við hér. Stífla fyrir allan penninginnnn...

Mikið búið að gerast.
Jól og ármót komu og fóru. Mikið gaman, Stína og co voru hjá okkur og var borðaður Íslenskur h-hryggur með öllu tilheyrandi ásamt heimabökuðu laufabrauði. Bara gott...
Mikið var um paka, kort og kveðjur frá Íslandi. og held ég að það sé pínu vegna þess að ég vældi svo mikið núna í des, þar sem ég held að við fjölskyldan hér í USA hafi hreynlega gleymst á jólunum árið áður..ehe
Takk fyrir okkur elskurnar. Við erum bara glöð!! :haha::haha:

Heimsótum Rose fjölskylduna á jóladag og enduðum svo í veislu hjá Heiðu og co. Sild,lax,rugbrauð og pate ásamt hangikjöt með öllu tilheyrandi...Geðveikt gott...omg Annars var bara legið á meltuni og borðað Nóa konfekt á milli. Tíbisk jól held ég bara!!

Áramótin voru haldin hátíðleg í bílskúrnum ásamt Íslensku mafíuni okkar og var horft á annála og skaup rétt eins og á Íslandi. Eftir skaupið var hurðin opnuð og sprengdar alvöru sprengjur sem Helgi Steinar keypti fyrir utan fylkismörkn, okkur og nágrönnum til mikillar gleði.. ;)

Magnea, Guðni og Kristþór komu til okkar í byrjun jan, eftir langt ferðalag. Þá sérstaklega fyrir litla manninn sem stóð sig alveg eins og hetja alla leiðina. Tvær flugvélar og mið nótt. Hann var bara góður. Hann er svo glaður og fallegur að ég er hreinlega að kafna. Við mikið að chila, njóta litla mannsins og hafa það gott. Helen,outlet molið,Sirkus og fl. á döfini. Fórum í sædýrasafnið í fyrradag. Svaka gaman..:haha::haha:
Rúnar í NY núna og svo Canada út vikuna en kemur heim um helgina..jeij
En sem og svo oft áður þá seigja myndirnar mínar meira en mörg orð..

http://picasaweb.google.com/Kolla.Hildur

Gaman væri ef einhver nennti að commenta eða skrifa í gestabókina!!!!!!!!!!!
Takk fyrir okkur og gleðilegt árið elskurnar mínar. Sakna ykkar allra..
Love
Kolla


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.12.2008 17:55:44 / kolla-atlanta

Jóla hvað!!!

Ég löngu komin heim en miki haft að gera og lítið blogað, nei eiginlega ekkert blogað. Ferðin okkar var alveg frábær og held ég að myndirnar mínar seigja meira en mörg orð. 8|
http://picasaweb.google.com/kolla.hildur

Rúnar kom heim í 1/2 sólahring um síðustu helgi og fór síðan til Íslands. Get nú ekki annað enviðurkennt að ég er búin að vera hálf þunglynd síðan hann fór og er ekkert að komast í jólaskap :(  Stína systir kom í gær og fórum við að kaupa jólagjafir. Keypti flestar gjafirnar nema á eftir smá viðbot á Rúnar en svo eru strákarnir okkar eftir. Enduðum kvöldið með Heiðu, Fríðu og Robin miðri í bæ á Atlantic Station. Borðuðum svakalega góðan mat og drukkum gott vín, svaka fínt. Líka gaman að hafa Stínu systir með.

Heyrði í Rúnari áðan og er brjálað að gera í vinnuni og svo er hann að reyna að hitta sem flesta á klakkanum. En hafið það í huga elsku vinir og ættingar að það er soldið erfit að hlaupa á milli allra sem mar langar að hitta á svo stutum tíma. Auðvelt fyrir ykkur. (þar að seigja ef ykkur langar að hitta hann) Bara ein heimsókn pr fjölsk. Hann er hjá Davið!!!!!!

Við mafían her í Atlanta erum að fara á jólahlaðborð  Chateau Elan. Mig hlakar soldið til en frekar súr að hafa RS ekki með mér. En kemur mér kannski í jólagírin. Þetta er staðurinn. Gegjaður kastali...
http://www.chateauelan.com/dining/versailles-.html

Ef þið eruð með jólpaka fyrir okkur þá er Rúnar með pláss. :d
Þið ættuð öll að vera komin með pakana sem eiga að fá frá okkur undir eitthvað tréið...Jeij jei.
Sendi eingin jólakort í ár svo gleðileg jól elskurnar mínar og takk fyrir árið sem er að líða. Endilega verið í bandi yfir hátiðarnar ef þið getið. Verið góð hvort við annað og munið bara að okkur þykkir svakalega vænt um ykkur...
Love
Kolla

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2008 05:04:12 / kolla-atlanta

Machu Picchu, Peru

Jæja nú við hjónakornin búin að flaka um Mexico og Líma Peru, en erum núna í Cusco Peru. Búin að sjá Machu Picchu og erum bara heilluð. Ekki að undra að það er eitt af 7 undrum veraldar. OMG. En við forum aftur til Mexico á morgun og svo fer ég heim á þriðjudagsmorgun. Rúnar verður eftir í Mexico fram á föstudag og svo Ísland á laugardag í viku. Svo bara að koma Jól...Jeij 
Hendi inn myndir strax í næstu viku. Love you all
K

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.11.2008 21:16:21 / kolla-atlanta

Konur eru sagðar mildast með aldrinum???

Já ég er ekker alveg frá því að það sé rétt. Kannski að ég spyrji Rúnar að koma með koment á það þegar hann lemur heim.
Annars búin að vera lasin mest af vikuni og er eiginlega bara búin að fá nog. Reif mig á fætur og í sturtu í morgun og fór i að gera það sem setið hefur á haknum alla vikuna.
Svo á morgun þá bara koma sér í gírinn.

Helgi okkar á afmæli í dag. Til hamingju með daginn elsku strákur, bíð bara eftir að fá gott afmæliparty. Við missum alltaf af öllum góðu afmælinum á Íslandi svo við verðum bara að halda upp á okkar hérna í usa með stæll....hummm

Rúnar kemur heim á föstudag og verður heima fram yfir helgi svo er hann farin til Canada aftur. Vonandi bara í tvo til þrjá daga. Svo er það bara Mexico og þaðan til Lima Peru 30 nóv. Rúnar verður svo eftir í mexico á heimleið, verður þar út þá viku.  Við hjónakornin erum á kafi í að skipuleggja þetta og erum svaðalega spennt. Heiða, Fríða, Konni og makar ætla öll að leggjast á eitt við að sjá um Ingólf fyrir okkur á meðan.  Golfæfingarnar ganga svakalega vel og er Ingólfur að verða bardagameistari dauðans.. 

Svo eru bara að koma Jól. Ertu búin að kaupa jóla-paka handa mér???

Verð að rjúka... Love you all...


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 01:31:25 / kolla-atlanta

Ekki er öll vitleysan eins.......

Já allt til betri vega á Íslandi. Er að ekki annars? Við að fá lán til að bjarga efnarhagsástandinu og gera okkur kleift að panta prenthylki og aðrar nauðsynjar. Hvað verðum við lengi að borga þetta niður? Kannski ekki við heldur barna barna-börnin okkar. Æi ég veit ekki hvað skal halda? Hvað þá barna barna-börnin þegar þeirra tími
kemur.
Eitt sem við Íslendingar höfum ekki haldi okkur að höndum í er Facebock. Er núna búin að vera þar í nokkrar vikur og á alveg hellingur af vinum og hver sagði að ég væri ekki rík. Allskonar fólk, vinnir og fjölskilda er að poke í mig og vilja vera vinir mínir. Yndislegt. Líka það að það er mitt að áhveða hverjir verða vinir mínir og hverjir ekki. Einfaldlega ekki að samþykkja. Sem hefur nú ekki gerst en þá. Allt fólk sem ég vill vera í bandi við. Samt ekki alveg að ná öllu við þetta en gaman samt. 

RS heima um helgina og var laugardagurinn hræðilega bissi. Golfkennsla, Taik wan do, heitir vængir, Bond 007 sem endaði með pizzu veislu heima hjá Fríður og Helga. Förum 11 saman á Bond. 007 bara flotur en vantaði Gagetið í myndina. Þið vitið, úrið sem spítir sýru eða billinn sem talar/keyrir sjálfur. Bond með bjór, hafið þið séð það í Bond mynd áður?  Annars aksjónið flott, frábær mynd. En svo er RS farin á mán og kemur aftur á föst.

Við hjónin erum að plana ferð til Mexico og þaðan til Lima í Peru í byrjun Des.. Hljómar hræðilega spennandi og kem með upplýsinginar þegar allt er komið á hreynt.
Nú lygg ég í bælinu með einhvern flensu skít. Fann að eitthvað ógeð var að hellast yfir mig í gærkveldi...annsk... Svo nú drekk ég Teraflu eins og mér sé borgað fyrir það, fæ þvílíka þjónustu. Beyglu og heitt kakó í morgun og hefur þjónustuni ekki hallað þegar nú er að líða á kvöldið. RS og Ingólfur létu mig fá talstöð (bjalla gamlatímans) til að hóa ef mig vantaði eitthvað. Gargandi snild....

Love
Kolla veika




» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 14:11:53 / kolla-atlanta

Land alsnægtar og slátur!!!

Til hamingju með 40 ára afmælið elsku Björg mín. Loks búin að ná mér:haha:
Veit þú á fullu að undirbúa stórveislu sem haldin verður á laugardaginn. Gangi ykkur vel og hafið gaman þó ég viti að að verði eylítið erfiðara án mín...

Okkur Ingólfi gengur vel í gólfinu og er æfing hjá okkur í kvöld. Ásamt Taek Van do hjá Ingólfi. Hann fór í Langbest bolnum sínum í skólann í morgun alveg svaðalega stoltur að vera vinur Ingólfs K og Langbest. Tók mynd af honum, hendi henni inn á Picasa á eftir. 
Endurskipulagði fataherbergið mitt, það er alveg ótrúlegt hvað mar safnar af fötum. Goodwill verða bara glaðir með mig.

Við IR fórum til tannlæknisins okkar í Marietta í gær og við viltumst. Er vön að fara á Cruserinum þangað og nota GPS-inn í honum, keyra án þess að hugsa. En RS er á honum í Canada svo ég fór á Mustanginum mínum og þurfti að hugsa. Vitið menn ég varð svo lost að það hálfa hefði verið nóg. Endaði með að ég hringdi í tanna og fékk hann til að leiðbeina mér þar til að ég kannaðist við mig og komumst við loks á leiðarenda en 30 mín of seint.  Ingólfur svaf allann tíman. 8| En fengum tannhreinsun og eingin skemmd...

Horfði á fréttir á RUV í gær og sá að það eru en að koma upp endalausar vitleysa. Nú er Íslenska ríkistjórnin gjörsamlega búin að skíta upp á bak. Hvað ætla þessir menn að gera? Skildi þetta vera upphafið a endinum hjá þeim, og þeir gera þeir sér grein fyrir því og gera þess vegna svona vannhugsaða hluti. Alveg ótrúlegt... Og ætlar Davið virkilega ekki að segja af sér. Hvað er í gangi???  En við Íslendingarnir stöndum þetta af okkur og búum bara til slátur og bökum brauð...Er það ekki.. arg. Rekum þessa menn og eingin eftirlaunin. Sjáum hvort þeir fari að troða í vambir.:^)

En bara glöð og nóg að gera í dag svo hæta að bula núna og koma mér að verki.
Takk fyrir kveðjurnar elsku tengdó, Kolla sys og Bríet. Bara gaman að heyra að þú og Tóta séuð að fylgjast með hvað ég að gera og tuða. Væri gaman að heyra í ykkur. mjá mjá....

P.S.
Stígur og Rósa eru að leigja út íbúðina sína í Lautasmára 16. Kóp. Ef þið vitið um einhvern sem vantar íbúð látið mig endilega vita. Miðsvæðis og mjög falleg íbúð


Love
Kolla bolla í landi alsnægtar.. En þá allavega...hehehe




» 1 hafa sagt sína skoðun

09.11.2008 20:24:05 / kolla-atlanta

Golf og önnur ljósmynd í ljósmyndabókina að ári.

Við Ingólfur erum byrjuð í golf-kennslu og erum við að fíla okkur vel í þessu nýja sporti okkar. Eru ekki nema 3 mín að keyra út á range-völlinn svo við förum á hverjum deigi að æfa okkur. Heiða ætlar að láta mig fá gömlu kylfurnar sínar en verð að kaupa nýjar fyrir Ingólf. Svo er hann að æfa austurlenska bardagalist 3 í viku og golfið verður allavega 2 í viku. Svo nóg er að gera hjá honum.

Var að fá verlaunaskjöld fyrir en aðra mynd, byrtist í ljósmyndabókini að ári. :haha:
Rúnar for til Canada í morgun og verður þar eitthvað fram eftir vikuni. Farbanið mitt á hann náði þó nokkrum vikum. Nú er það ræktin á hverjum morgni og golfið tvisvar í viku..

Jæja er að rjúka til Fríðu og Helga í steik. :)

Elsku Sigga og Baddi til hamingju með daginn......!!!!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2008 16:39:15 / kolla-atlanta

Obama maður dagsins!!

Kostningarnar fóru bara nokk vel og er okkar maður næstur í Hvíta húsið..:d

Allt fínt hér. Veturinn að koma, um 20 á daginn niður í 12gr á næturnar. Ingólfur var veikur alla síðustu viku og endaði á sýklalyfjum. Góður núna og er komin á fullt í skólann,Tike wan do og erum að byrja að taka gólftíma með kennara saman á pútvelli sem er hérna rétt hjá okkur.  Það er nú bara vega þess að okkur langar að spila gólf en ætlum að taka nokkra tíma með kennara áður en við hendum okkur á völlinn og verum okkur til algerar hneisu.

Litla systir mín Magnea og strákurinn hennar Kristþór tóku þátt í að búa til afskaplega fallegt myndband. Kikið á. Brynja vinnkona hennar er þarna líka. Bara fallegar...

http://www.vimeo.com/2136480


Er að klára verkefni og síðan að koma sér í það næsta sem er nú ekki alveg víst hvað er en ég finn eitthvað...:$

Hvernig gengur ykkur annars á Íslandi? Hvernig er kreppan að koma við ykkur? Skilst að það sé nú missjafnt. En heyri sjaldnar eða eiginlega bara ekkert í ykkur undafarið nema að ég hafi samband að fyrra bragði. Svo kannski eruð þið bara í einhverju þunglindi og nennið ekki að heyra í glöðu konuni í USA..? HA    :!:

Elska ykkur
Kolla


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.10.2008 13:18:48 / kolla-atlanta

A og B í öllu..

Ingólfur var að fá einkanir fyrir fyrsta quarter-ið í skólanum og er hann með A og B í öllu og fær verðlaun fyrir frábæran námsárangur. Hann er snillingur þessi elska. Bara að standa sig vel...8|

Fengum vinni og nágrana í mat á föstudagskvöld, svaka gaman. Leti og kósý heit á laugardag. Pumpkinsdagur á Sunnudag. Sá myndir
http://picasaweb.google.com/Kolla.Hildur

RS á Ráðstefnu hjá Microsoft í þrjá daga og svo farin til NY. Svo hann verður nú lítið heima þessa vikuna.
Brindís og Navil eignuðust gullfallega stelpu 16 okt. Til hamingju elskurnar..
Er byrjuð á fullu aftur í ræktini og nú á sko að taka á því.:s Soldið kalt í morgun svo mig grunar að haustið sé að skella á okkur. brrrrrr En nú getur mar farið að fara í gallabuxur og háa klosa og verið smá pæja aftur...Verð að rjúka, á tíma í ræktini eftir 5.. bæ Love you all....
K


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 17:59:15 / kolla-atlanta

Konni og Amber á Íslandi....

Þau fóru síðastliðin föstudag og búin að hafa það eins gott og hægt er. Mikill skuggi er þó á ferðini hjá þeim þar sem pabbi besta vinnar Konna lést í síðustu viku. Svo það er mikil sorg. En veit að Konni er svakalega fegin að vera hjá honum núna. Mig vantar smá að knúsa þá/þau öll núna. Soldið erfit þegar strákarnir mínir og allir eru að ganga í gegnum svona mikla sorg og ég svo langt í burtu. garg...

Stína og Pabbi komin í kreppuna og fengu loks í morgun síðustu töskuna, fóru allar fjórar á flakk. Airtran að skíta í buxurnar hérna skal ég seigja ykkur. róa sig,,allar fjórar. hummmmm:$

Við erum bara þrjú í húsinu núna og þykkir það til tíðinda. Grunar að það verði nú nokk rólegt hvað varðar gestagang frá Íslandi fram yfir áramót. Allir að halda að sér höndum í kreppuni. En vitið ef ykkur langar og getið þá svakalega velkomin til okkar.

Vonandi næ ég að halda RS heima þessa vikuna. Hann búin að vera á ferðini síðustu sex vikur. Krasí..  
Ég búin að vera hræðilega bissi og nóg framundan. Mikið að vinna fyrir RS og læra á Photoshop. Æfingin skapar meistarn sagði einhver...annsk. bull... Nei djók það geri það.... í alvöru.
Elska ykkur öll og munnið að vera góð við hvort annað. Var að hugsa um að skrifa eitthvað meira væmið en nei!!! ekki núna....

Kvitt væri fallegt.. Love and miss you all    8|

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.10.2008 03:29:08 / kolla-atlanta

Nýjar myndir á Picasa

Var að henda inn nýjum myndum. Helingur af myndum frá Stínu vél á picasa,,Já myndir af mér líka. omg... 

http://picasaweb.google.com/Kolla.Hildur/MyndirRPabbaOgStNuMyndavL#

Konni óg Amber komin á Ísland og Pabbi og Stína fóru í dag. Svo við bara ein í kotinu.
Tókum video og kauptum nammi og snakk. Bara rólegt í kvöld. Nema að RS keypti nýja tölvu handa mér og annan stórann skjá og seti það upp í kvöld. Og ómg nú er ég að vinna á tveimur risa skjáum og er að venjast. Alger snild. Verð smá nice við hann næstu daga sko...eheh

Ætla að fara að skríða í rúmið. Vona að Pabbi og Stína hafi komist heim í lagi... verð í bandi...
Love Kolla

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 13:44:57 / kolla-atlanta

Sýningin í gangi og allt fór á besta veg.

Við brunuðum öll á sýninguna á laugardagas kvöld og þar voru  fyrir þau Helgi, Fríða og strákarnir ásamt Helga. Stína og co komu líka. Myndirnar en flottari komnar upp á vegg í þessum líka frábæra sýningarsal. Og ekki var vera að fá viðurkenningu fyrir vel unnið verk á minni fyrstu ljósmyndasýningu. Átti alls ekki vona á að vinna nein verðlaun. Hissa er væglega tekið til orða.:haha: Sjá myndir á Picasa

http://picasaweb.google.com/Kolla.Hildur

RS í NY síðan á mán. Kemur heim í kvöld. Konni og Amber að fara til Íslands á föstudag og Pabbi og Stína fara á laug. Allt virðist núna vera á heljarhöm í kalda landinu. Vona að það sé ekki að valda ykkur miklum kvíða..Verður allt í lagi held ég!!!!!

Verslaði allar jólagjafir í vikuni og kemur Jólasveininn (konni) með pakana á Ísland um helgina. Svo getið glaðst yfir því... Verð að rjúka..
Ætla ekki einu sini að reyna að biðja ykkur að kvita. Grunar að eingin kíki á síðuna mína... Elska ykkur öll.

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 22065
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 585 dögum
Kem ég til Íslands
Dagsetning
9. febrúar 2010